Læra, skapa og auka framleiðni með gervigreind
Grípandi kynningar sem vekja áhuga
Hvernig má hagnýta gervigreind í starfi og leik
Notaðu réttar aðferðir til að fá gervigreindina til að gera það sem þig vantar.
Breyttu og skapaðu myndir, teikningar og kvikmyndir.
Aðgengileg og skemmtileg námskeið um hagnýta notkun gervigreindar fyrir einstaklinga og starfsmenn fyrirtækja. Námskeiðið er kennt í tveimur lotum, í þrjá tíma í senn og þátttakendur fá með sér heimaverkefni til þess að koma enn betur undirbúnir fyrir kennslu og leiðbeiningar á öðrum degi.
Námskeiðið nýtist bæði þeim sem hafa litla þekkingu eða reynslu í notkun gervigreindar sem og þeim sem eru þegar byrjaðir að fikta en vilja ná lengra og taka notkunina á næsta stig.
Á námskeiðinu er farið í notkun algengustu gervigreindartólanna með áherslu á ChatGPT frá OpenAI, Gemini frá Google og Grok frá X. Einnig eru sýnd dæmi um notkun á app-útgáfum þessara tóla í síma.
